Í lokaþættinum rifjum við upp lífsstíls- og skemmtiþætti sem gert hafa lífið skemmtilegra fyrir áhorfendur. Fjölmargir Íslendingar hafa kafað í Djúpu laugina og við rifjum upp nokkra spretti. Einnig sjáum við brot úr fjölmörgum þáttum og má þar nefna Bingó með Villa, Fyrstu skrefin, Kómíski klukkutíminn, Jóga, Glamúr, Heil og Sæl, Út að grilla, Teikni leikni, Fyrigefðu, Popppunktur, Landsins snjallasti, Gegndrepa, Innlit/útlit, Konfekt og Fólk með Sirrý.