Sería 1 - Þáttur 20 af 22
Sýndur á SkjáEinum 19. maí 2012
August aðstoðar Emmu við að sigra Reginu og fá forræði yfir Henry á meðan Regina er upptekin við að draga David á tálar og í ævintýraheimi reyna menn að bjarga dóttur Mjallhvítar og prinsins.
Once Upon a Time
Frá framleiðendum Lost koma þessir vönduðu og skemmtilegu þættir sem gerast bæði í ævintýralandi sem og nútímanum. Emma Swan er ung kona sem býr og starfar í Boston sem hausaveiðari. Á tuttugasta ...
Frá framleiðendum Lost koma þessir vönduðu og skemmtilegu þættir sem gerast bæði í ævintýralandi sem og nútímanum. Emma Swan er ung kona sem býr og starfar í Boston sem hausaveiðari. Á tuttugasta og áttunda afmælisdaginn kemur til hennar drengur sem kveðst vera sonur hennar og líf hennar verður aldrei samt aftur. Þannig hefst ævintýri Emmu sem á eftir að komast að því að hún er dóttir sjálfrar Mjallhvítar og prinsins og hefur verið útvalin til að létta álögum vondu drottningarinnar.
Með helstu hlutverk fara Jennifer Morrison, Ginnifer Goodwin, Robert Carlyle og Lana Parrilla.