Skemmtilegur þáttur fyrir alla fjölskylduna þar sem sýnd eru bráðfyndin myndbönd, bæði innlend og erlend, sem kitla hláturtaugarnar og koma öllum í gott skap. Kynnir er Jón Jósep Snæbjörnsson, betur þekktur sem Jónsi í hljómsveitinni Í svörtum fötum.