- Ekkert venjulegt sjónvarp

Skjárinn Minn

Innskráning


Dagskrá

  • 24. - 27. maí Crowne Plaza Invitational - PGA Tour 2012
    Þetta golfmót er einn stærsti viðburður PGA mótaraðarinnar. Völlurinn sem er í hjarta suðurríkjanna í Texas refsar kylfingum sem vanda sig ekki grimmilega. David Toms sigraði félaga sinn Charlie Wi á síðasta ári með einu höggi á fimmtán undir samanlögðu pari vallarins.
    BEINT:
    Fimmtudagur 24. maí kl. 19:00 - 22:00
    Föstudagur 25. maí kl. 19:00 - 22:00
    Laugardagur 26. maí kl. 19:00 - 22:00
    Sunnudagur 27. maí kl. 19:00 - 22:00
  • 27. maí BMW PGA Championship - European Tour 2012
    BMW meistaramótið er hluti af evrópsku mótaröðinni og er haldið á einstökum velli í Surrey á Englandi. Á síðasta ári bar Luke Donald sigur úr býtum eftir æsispennandi bráðabana
    BEINT:
    Sunnudagur 27. maí kl. 13:00 - 17:00
  • 31. maí - 3. júní The Memorial Tournament - PGA Tour 2012
    Það var goðsögnin Jack Nicklaus sem stofnaði til þesa móts árið 1976 eftir að hafa hannað og skipulagt nýjan golfvöll á æskuslóðum sínum í Columbus í Ohio. Tiger Woods sigraði mótið árið 2009 en á síðasta ári var það Steve Stricker sem stóð uppi sem sigurvegari. Tiger mætir aftur til leiks í ár.
    BEINT:
    Fimmtudagur 31. maí kl. 19:00 - 22:00
    Föstudagur 1. júní kl. 19:00 - 22:00
    Laugardagur 2. júní kl. 16:30 - 22:00
    Sunnudagur 3. júní kl. 16:00 - 22:00
  • 7. - 10. júní FedEx. St. Jude Classic - PGA Tour 2012
    Þetta einstaka stórmót PGA mótaraðarinnar á upphaf sitt að rekja til auðugra golfáhugamanna í Memphis. Að nokkrum árum liðnum þekktu allir til þessa móts vegna þess að Gerald Ford fyrrverandi forseti Bandaríkjanna sló í aðdragada mótsins holu í höggi. Mótið er haldið í Southwind í Memphis en á síðasta ári fagnaði Bandaríkjamaðurinn Harrison Frazar sigri.
    BEINT:
    Fimmtudagur 7. júní kl. 19:00 - 22:00
    Föstudagur 8. júní kl. 19:00 - 22:00
    Laugardagur 9. júní kl. 19:00 - 22:00
    Sunnudagur 10. júní kl. 19:00 - 22:00
  • 14. - 17. júní US Open 2012
    Opna Bandaríska meistaramótið er eitt af risamótum ársins sem að þessu sinni fer það fram í San Fransisco. Rory McIlroy bar eftirminnilega sigur úr býtum á síðasta ári og verður spennandi að sjá hvernig Norður-Íranum gengur á þessu sögufræga risamóti.
    BEINT:
    Fimmtudagur 14. júní kl. 20:00 - 02:00
    Föstudagur 15. júní kl. 20:00 - 02:00
    Laugardagur 16. júní kl. 20:00 - 02:00
    Sunnudagur 17. júní kl. 20:00 - 02:00
  • 21. - 24. júní Travelers Championship - PGA Tour 2012
    Þetta skemmtilega mót sem fram fer í Connecticut í Bandaríkjunum hefur verið hluti af PGA mótaröðinni frá árinu 1952. Gríðarlegur fjöldi áhorfenda setur jafnan svip á þetta sterka mót og eru áhorfendur sammála um að hvergi myndist eins góð stemmning og á Travelers Championship.
    BEINT:
    Fimmtudagur 21. júní kl. 19:00 - 22:00
    Föstudagur 22. júní kl. 19:00 - 22:00
    Laugardagur 23. júní kl. 17:00 - 22:00
    Sunnudagur 24. júní kl. 17:00 - 22:00
  • 28. júní - 1. júlí AT&T National - PGA Tour 2012
    Sterkt mót sem jafnan er haldið mitt á milli risamótanna Opna bandaríska og Opna breska en það er gert til þess að tryggja að keppendur séu í sínu besta formi. Það var gamli refurinn Nick Watney sem bar sigur úr býtum á síðasta ári en það er haldið að þessu sinni í Maryland. Tiger Woods mætir til leiks í þetta mót.
    BEINT:
    Fimmtudagur 28. júní kl. 19:00 - 22:00
    Föstudagur 29. júní kl. 19:00 - 22:00
    Laugardagur 30. júní kl. 17:00 - 22:00
    Sunnudagur 1. júlí kl. 17:00 - 22:00
  • 5. - 8. júlí The Greenbrier Classic - PGA Tour 2012
    Þetta mót var haldið í fyrsta sinn fyrir tveimur árum sem hluti af PGA mótaröðinni. Það fer fram í Vestur Virginíu og leysir af hólmi hið fornfræga Buick Open. Bandaríkjamaðurinn Scott Stallings bar sigur úr býtum á síðasta ári á tíu undir pari vallarins. Tiger Woods mætir í fyrsta sinn til leiks í Greenbrier Classic.
    BEINT:
    Fimmtudagur 5. júlí kl. 19:00 - 22:00
    Föstudagur 6. júlí kl. 19:00 - 22:00
    Laugardagur 7. júlí kl. 19:00 - 22:00
    Sunnudagur 8. júlí kl. 19:00 - 22:00
  • 12. - 15. júlí John Deere Classic - PGA Tour 2012
    Þetta mót fer alltaf fram viku áður en Opna breska hefst en það tryggir jafnan góða þátttöku sterkra kylfinga. Steve Stricker sló met á síðasta ári þegar hann varð fyrstu kylfinga til að bera sigur úr býtum á mótinu þrisvar sinnum í röð. Það verður því spennandi að sjá gengi Strickers að þessu sinni.
    BEINT:
    Fimmtudagur 12. júlí kl. 19:00 - 22:00
    Föstudagur 13. júlí kl. 19:00 - 22:00
    Laugardagur 14. júlí kl. 19:00 - 22:00
    Sunnudagur 15. júlí kl. 19:00 - 22:00
  • 15. júlí Scottish Open - European Tour 2012
    Opna skoska hefur stækkað gríðarlega undanfarin ár og er nú meðal stærstu móta evróputúrsins. Luke Donald sigraði á mótinu á síðasta ári eftir hörkukeppni við Svíann Fredrik Andersson Hed.
    BEINT:
    Sunnudagur 15. júlí kl. 12:30 - 16:30
  • 19. - 22. júlí Opna breska 2012
    Þetta fornfræga mót er eina risamótið sem fram fer utan Bandaríkjanna og þykir mikill heiður að fá þátttökurétt. Mótið fer fram að þessu sinni á golfvellinum Royal Lytham & St. Annes Golf Club á norðvestur Englandi. Norður Írinn Darren Clarke sigraði mótið á síðasta ári og fékk að launum 900.000 pund.
    BEINT:
    Fimmtudagur 19. júlí kl. 08:00 - 19:00
    Föstudagur 20. júlí kl. 08:00 - 19:00
    Laugardagur 21. júlí kl. 09:00 - 18:30
    Sunnudagur 22. júlí kl. 10:00 - 17:30
  • 26. - 29. júlí RBC Canadian Open - PGA Tour 2012
    Það var árið 1904 sem stofnað var til Opna kanadíska golfmótsins. Þótt vissulega séu til stærri mót, lifir þetta á fornri frægð sem eitt stærsta opna mótið, fast á hæla þess bandaríska og breska. Tiger Woods sló met árið 2000 þegar hann sigraði öll áðurnefnd mót. Á síðasta ári var það hinsvegar landi hans Sean O‘Hair sem hreppti hnossið.
    BEINT:
    Fimmtudagur 26. júlí kl. 19:00 - 22:00
    Föstudagur 27. júlí kl. 19:00 - 22:00
    Laugardagur 28. júlí kl. 19:00 - 22:00
    Sunnudagur 29. júlí kl. 19:00 - 22:00
  • 2. - 5. ágúst World Golf Championship - Bridgestone 2012
    Tiger Woods hefur í gegnum tíðina verið einkar sigursæll á þessu móti en hann sigraði árin 1999-2001, 2005-2007 og loks árið 2009. Mótið fer fram í Ohio sem hluti af heimsmótaröðinni og gefur stig í hvorutveggja PGA- og Evrópumótaröðinni. Á síðasta ári var það ástralski kylfingurinn Adam Scott sem sigraði.
    BEINT:
    Fimmtudagur 2. ágúst kl. 18:00 - 22:00
    Föstudagur 3. ágúst kl. 18:00 - 22:00
    Laugardagur 4. ágúst kl. 18:00 - 22:00
    Sunnudagur 5. ágúst kl. 18:00 - 22:00
  • 9. - 12. ágúst PGA meistaramótið 2012
    Mikil eftirvænting er jafnan eftir þessu síðasta risamóti ársins sem fram fer Kiawah eyju í Suður Karólínu. Þetta er síðasta tækifæri sem gefst kyflingum á sigri á risamóti en á síðasta ári var það Keegan Bradley sem stóð uppi sem sigurvegari eftir æsispennandi keppni.
  • 16. - 19. ágúst Wyndham Championship - PGA Tour 2012
    Ólafur Loftsson, kylfingur úr Nesklúbbnum tryggði sér þátttökurétt á mótinu á síðast ári en sigurvegari mótsins var Bandaríkjamaðurin Webb Simpson. Mótið fer fram í Norður Karólínu ár hvert en það var hótelrisinn Wyndham sem tók við af Chrysler sem helsti bakhjarl mótsins.
    BEINT:
    Fimmtudagur 16. ágúst kl. 19:00 - 22:00
    Föstudagur 17. ágúst kl. 19:00 - 22:00
    Laugardagur 18. ágúst kl. 19:00 - 22:00
    Sunnudagur 19. ágúst kl. 19:00 - 22:00
  • 23. - 26. ágúst The Barclays - PGA Tour Playoffs 2012
    The Barclays hefur markað upphaf úrslitakeppninnar á PGA mótaröðinni frá árinu 2007 þegar Fed-Ex bikarinn var tekinn upp. Mótið fer fram í New Jersey en Bandaríkjamaðurinn Dustin Johnson bar sigur úr býtum á síðasta ári á 19 undir pari vallarins og setti þar með nýtt mótsmet.
    BEINT:
    Fimmtudagur 23. ágúst kl. 19:00 - 22:00
    Föstudagur 24. ágúst kl. 19:00 - 22:00
    Laugardagur 25. ágúst kl. 19:00 - 22:00
    Sunnudagur 26. ágúst kl. 18:00 - 22:00
  • 31. ágúst - 3. september Deutsche Bank Championship - PGA Tour Playoffs 2012
    Úrslitakeppnin í PGA mótaröðinni er æsispennandi. Deutsche Bank Championship hefst ólíkt öðrum mótum á föstudegi og lýkur á mánudegi. Webb Simpson sigraði á síðasta ári en fimmtán undir pari vallarins.
    BEINT:
    Föstudagur 31. ágúst kl. 19:00 - 22:00
    Laugardagur 1. september kl. 19:00 - 22:00
    Sunnudagur 2. september kl. 17:00 - 22:00
    Mánudagur 3. september kl. 15:30 - 22:00
  • 6. - 9. september BMW Championship - PGA Tour Playoffs 2012
    Nú fara línur að skýrast í úrslitakeppni PGA mótaraðarinnar á BMW meistaramótinu sem byggir á afar traustum grunni frá þarsíðustu aldamótum. Justin Rose sigraði mótið á síðatasta ári en Tiger Woods árin 2009 og 2007.
    BEINT:
    Fimmtudagur 6. september kl. 19:00 - 22:00
    Föstudagur 7. september kl. 19:00 - 22:00
    Laugardagur 8. september kl. 14:00 - 19:30
    Sunnudagur 9. september kl. 16:00 - 22:00
  • 20. - 23. september The Tour Championship - PGA Tour Playoffs 2012
    Atlantaborg í Georgíu er næsti viðkomustaður úrslitakeppni PGA mótaraðarinnar þar sem takmark allra þátttakenda er hinn goðsagnakenndi FedEx bikar. Bill Haas tryggði sér sigur á síðasta ári á þessu sterka móti eftir harða keppni.
    BEINT:
    Fimmtudagur 20. september kl. 17:00 - 22:00
    Föstudagur 21. september kl. 17:00 - 22:00
    Laugardagur 22. september kl. 14:00 - 19:30
    Sunnudagur 23. september kl. 15:30 - 22:00
  • 28. - 30. september Ryder Cup 2012
    Ryder bikarinn er stærsta einstaka mótið í golfheiminum. Mót þar sem bestu kylfingar Bandaríkjanna mæta þeim bestu frá Evrópu. Ryder bikarinn er aðeins haldið annað hvert ár og eftirvænting því gríðarleg.

Síður Skjásins


Skjárinn , aðrar síður

Um Skjáinn

Skjárinn | Skipholt 31, 105 Reykjavík, Iceland | Tel: +354 595 6000 | Email: info@skjarinn.is | Auglýsingar: auglysingar@skjarinn.is