Áskrifendur sem binda sig í ársáskrift að SkjárGolfi fá GOLFKORTIÐ sem veitir handhöfum þess ýmis fríðindi og afslætti.

SkjárGolf býður íslenskum golfáhugamönnum upp á sannkallaða veislu; Yfir 1.000 klukkutímar á ári í beinni útsendingu frá heimsklassa golfi. Ryder-bikarinn, Forsetabikarinn, Opna breska meistaramótið, Opna bandaríska mótið, PGA meistaramótið, heimsmótaröðin, bandaríska mótaröðin, evrópska mótaröðin og kvennagolf. Allir bestu kylfingar heims á einum stað.
SkjárGolf sinnir golfíþróttinni mun betur en íslenskir áhorfendur hafa kynnst til þessa. Á öllum stærstu mótunum eru allir keppnisdagarnir í beinni útsendingu, allt frá upphafi móts til enda. Golfið víkur aldrei fyrir öðrum íþróttum og umgjörðin er mun betri en sést hefur á Íslandi til þessa. Auk helstu golfmótanna er á dagskrá skemmtilegur fréttaþáttur alla virka daga þar sem hægt er að fylgjast með öllu sem er að gerast í golfheiminum. Sýnd verða viðtöl við bestu kylfinga heims auk þess sem áhorfendur fá að sjá allt það sem gerist á bak við tjöldin á stærstu golfmótunum.
SkjárGolf býður áskrifendum sínum ýmis golffríðindi og hefur náð samningum við fjölda golfklúbba um allt land. Meðal fríðinda eru 40% afsláttur af vallargjaldi þeirra klúbba sem eru í samstarfi við SkjáGolf. Golfkortið sló í gegn sumarið 2011 enda afsláttarkjörinn ekki af verri endanum.