- Ekkert venjulegt sjónvarp

Skjárinn Minn

Innskráning


Hjálp

Hvað er SkjárFrelsi á netinu?

SkjárFrelsi á netinu er nýjung á Íslandi sem gefur áskrifendum tækifæri til að horfa á efni SkjásEins í tölvunni og snjallsímanum, hvar og hvenær sem er.

Hingað til hefur SkjárFrelsi ekki verið aðgengilegt fyrir þá viðskiptavini SkjásEins sem eru með Digital Ísland og Breiðbandið, en með tilkomu SkjásFrelsis á netinu geta allir áskrifendur notað SkjáFrelsi.

Hver er munurinn á SkjárFrelsi og SkjáFrelsi á netinu?

SkjárFrelsi er þjónusta sem allir áskrifendur með myndlykil tengdan í gegnum ADSL eða ljósleiðara geta nýtt sér. Með því að ýta á Menu á fjarstýringunni og fara inn á reitinn VOD sem þar birtist geta viðskiptavinir horft á flestalla þætti SkjásEins eftir að þeir eru sýndir í sjónvarpi.

Með SkjárFrelsi á netinu er sama þjónustu gerð möguleg á netinu, þ.e í gegnum tölvu, snjallsíma eða spjaldtölvu. Þannig geta viðskiptavinir SkjásEins valið hvar og hvenær þeir vilja horfa á uppáhalds þættina sína án þess að þurfa að hafa eiginlegt sjónvarp fyrir framan sig.

Hvar get ég nýtt SkjáFrelsi á netinu?

Tæknideild SkjásEins hefur prufkeyrt SkjáFrelsi á netinu um land allt með góðum árangri en nauðsynlegt er að hafa aðgang að internetinu til að nýta sér þessa þjónustu.

Aðeins er hægt að nota SkjárFrelsi á netinu á Íslandi.

Geta allir horft á SkjáFrelsi á netinu?

Já allir áskrifendur SkjásEins sem hafa aðgang að tölvu, spjaldtölvu eða snjallsíma.

Í hvaða búnaði get ég horft á SkjáFrelsi á netinu?

Tölvu, iPad, Android og iPhone.

Geta margir horft á í einu á hverju heimili?

Með hverri áskrift fylgja tveir aðgangar (á sömu IP-tölunni) og því er hægt að nýta SkjáFrelsi á netinu á tveimur stöðum samtímis inni á sama heimili. Þetta er þó ávallt óháð sjónvarpsnotkun og þannig getur sjónvarpið verið í gangi á meðan á meðan tveir aðrir heimilismeðlimir geta horft á SkjáFrelsi á netinu í tölvu, spjaldtölvu eða í snjallsíma. Athugið að ekki er hægt að nota aðgangana á sitthvorum staðnum utan heimilisins.

Er hægt að nýta sér þjónustu SkjáFrelsi á netinu í sumarbústaðnum?

Já ef internet er til staðar og ekki er verið að nota aðganginn á heimilinu á sama tíma.

Hvernig fæ ég aðgang að SkjáFrelsi á netinu og hvar sæki ég um?

  1. Fyrsta skref er að gerast áskrifandi að SkjáEinum.

  2. Því næst er farið inn á http://www.skjarinn.is/skraning/nyskra/

  3. Þegar þangað er komið er stofnaður aðgangur.

  4. Staðfesta þarf kennitölu með því að senda hana í heimabankann.

  5. Undir „Þín skjöl“ (eða „Rafræn skjöl“) í heimabankanum finnur þú staðfestingarskjal frá SkjáEinum. Smelltu á hlekkinn í því til að virkja aðgang þinn. Til að gæta fyllsta öryggis þarf að auðkenna kennitölu við aðganginn. Þetta þarf aðeins að gera einu sinni.

  6. Þeir sem ekki eru með heimabanka geta komið við í Skipholti 31 með skilríki meðferðis og fengið aðganginn staðfestan eða fengið staðfestingarbréf sent í pósti.

Er hægt að gerast aðeins áskrifandi að SkjáFrelsi á netinu?

Nei, SkjáFrelsi á netinu er eingöngu í boði fyrir þá sem eru áskrifendur SkjásEins.

Til þess að gerast áskrifandi þarftu að vera með myndlykil.

Hvaða efni er á SkjáFrelsi á netinu?

Allt efni SkjásEins sem er í boði í SkjáFrelsi.

Flestallir vinsælustu þættir SkjásEins.

Einnig verður í boði efni úr fríu efni í SkjáBíó, til að mynda Matti Morgunn.

Ekki er boðið upp á að horfa á bíómyndir – allavega ekki að sinni.

Er hægt að horfa á SkjáEinn beint á www.skjarinn.is?

Nei, eingöngu er hægt að horfa þættina 60 mínútum eftir frumsýningu.

Kostar eitthvað að nota SkjáFrelsi á netinu?

SkjáFrelsi á netinu er innifalið í áskrift að SkjáEinum.

Er allt efni á SkjáFrelsi textað?

Já, líkt og allt erlent efni sem sýnt er á SkjáEinum.

Eru bannaðir þættir merktir með rauðu inni á SkjáFrelsi á netinu?

Já, eins og á SkjáEinum er efni merkt ef það er bannað innan ákveðins aldurs.

Efni á SkjáFrelsi á netinu fylgir sömu reglum og annað efni sem sýnt er í sjónvarpi.

Hvað er hver þáttur lengi inni í SkjáFrelsi á netinu?

Erlent efni er aðgengilegt í eina til tvær vikur.

Íslenskt efni er aðgengilegt í tvær til fjórar vikur.

Hvað eru margir þættir úr hverri seríu á SkjáFrelsi á netinu?

Það er misjafnt.

Af hverju höktir myndin?

Ástæðan getur verið sú að nettengingin er ekki nógu öflugt. Reyndu að endurhlaða síðuna eða byrja aftur frá byrjun. Athugaðu einnig nettenginguna.

Er hægt að horfa á SkjáFrelsi á netinu með Netpung/Netlykli?

Já en það getur haft áhrif á myndgæðin þar sem slíkar nettengingar geta verið hægar.



Síður Skjásins


Skjárinn , aðrar síður

Um Skjáinn

Skjárinn | Skipholt 31, 105 Reykjavík, Iceland | Tel: +354 595 6000 | Email: info@skjarinn.is | Auglýsingar: auglysingar@skjarinn.is